14 February 2012

Valentínusardagurinn

Þessi merkilegi dagur elskenda rann upp hérna í sveitinni jafn fagur og aðrir dagar hjá okkur.  Þegar maður er yngri hugsar maður stöðugt um daga sem þessa og að það þurfi að uppfylla einhverjar skyldur um súkkulaði-rósa-hjarta-gjafir eða eitthvað þvíumlíkt til að segja elskunni sinni hversu heitt maður elskar hana.  Í tímanna rás og þá sérstaklega eftir að maður eignast börnin sín snýst þessi súkkulaði ást upp í ÁST og þá með stórum stöfum.  Ástin á svo mörg andlit og þróast með okkur um leið og við þroskumst.  Ástin á börnin, lífið og hjónabandið sem hluta af okkur verður yfirsterkari súkkulaðinu og rósunum en á sama tíma eflist ástin á hvort öðru en á allt annan og djúpstæðari hátt þar sem ekkert fær rofið þau bönd sem styrkjast með hverju árinu sem líður.  Valentínusardagurinn í Grænuhlíð fór því fram með hefðbundnu sniði, börnin eru í vetrarfríi og fjölskyldan sameinuð í viku fríi, bíllinn á verkstæði og ekkert hægt að skreppa í tilefni dagsins, en það var bara skálað í djús við kvöldmatarborðið og allir létu vita hversu mikið þeir elski hvorn annan, Lína Rut litla stóðst ekki mátið og bjó til smá hjarta körfu með fallegum orðum á handa mömmu sinni en aðrir fjölskyldu meðlimir létu duga að vera jafn góðir hver við annan og venjulega.  Fyrir mér var þessi dagur fullkominn enda þó ég kæmist ekki út í búð að kaupa rauðar rósir, ást mín á lífinu, fjölskyldunni, börnunum og síðast en ekki síst á Ólöfu Maríu breytist ekkert þó dagurinn heiti eitthvað annað, þriðjudagur er jafn mikilvægur og Valentínusardagur fyrir mér enda hef ég áttað mig á því mikilvæga í lífinu.  Að lifa í núinu og njóta augnabliksins hefur verið einsskonar æfing hjá okkur hjónum frá því við fluttum út og á hverjum degi minnum við hvort annað á mikilvægi þess að njóta dagsins í dag, oft á tíðum gleymist þetta en við erum komin í góða æfingu og nú líður orðið varla sá dagur að við gleymum þessum fræðum.  Þetta er líklega það mikilvægasta sem ég hef lært enda er ég að gera eitthvað yndislegt á hverjum degi og það er ekkert svo ómerkilegt að ekki eigi að muna eftir að njóta.  Í hraða og skarkala daglegs lífs er hinsvegar auðvelt að gleyma sér en ég hvet alla sem þetta lesa að muna eftir núinu og njóta augnabliksins, maður veit aldrei hvenær er of seint að láta einhvern vita hversu góður hann er eða hversu heitt maður elskar einhvern, ekki bíða í 1 ár eftir næsta augnabliki til að segja fólkinu þínu hversu heitt þú elskar þau eða ástinni þinni hversu yndisleg hún er, segðu þetta á hverjum degi og njóttu þess að vera til,  "Happy Valentines day elsku Ólöf María mín, ást mín á þér breytist ekkert, þú ert og verður alltaf ástin mín, sama hvaða dagur er"
Kv, Bjarni Kr

08 February 2012

Skautafjör :)

Undanfarið hefur verið ótrúlega kalt hjá okkur í Dönsku sveitinni eða allt upp í mínus 22 gráður á nóttunni.  Bíllinn okkar þoldi ekki álagið og það gaf sig vatnshosa á laugardaginn þrátt fyrir að passað hafi verið upp á frostlög og tilheyrandi en væntanlega var um veikleika að ræða sem gaf sig við álagið.  Að fara undir sæng á kvöldin er alveg magnað þar sem öll kynding er í lágmarki og því hressilega kalt að skríða undir sæng en það lagast fljótt  enda fólkið á bænum komið í æfingu eftir frostaveturinn mikla í fyrravetur :)  Hér stefnir þó í rauðar tölur á næstu dögum og vonandi er bara að koma vor hjá okkur.  Lína Rut nýtir tækifærið og skautar í sveitinni og í dag skrapp hún með vinkonu sinni á næsta bæ á skautasvell hérna rétt hjá.  Allir voru vel klæddir, Lína Rut í lopapeysu og flísbuxum og auðvitað var heitt kakó með í för.  Náði mynd af litlu stelpunni okkar þegar hún kom heim, fallega rjóð í kinnum og ánægð með daginn :)
Kv, Bjarni Kr

22 January 2012

Unglingurinn okkar

Ævar Elí fer hröðum skrefum í átt að unglingnum þessar vikurnar eða mánuði og má sjá og heyra á honum að hann er að verða stór :)  Hann er farinn að vilja greiða sér oftar þegar verið er að fara eitthvað og setja á sig ilm og svoleiðis fínerí.  Umræðu efnið er að einnig að breytast og nú er hann farinn að taka meiri þátt í umræðuefnum fullorðna fólksins.  Sem betur fer er litli drengurinn okkar að þroskast þó það taki aðeins á foreldrana, sem telja sig enn vera korn ung og að þau eigi enn lítil börn.  Lífsins gangur og hvert tímabil fyrir sig með sinn sjarma og nú er bara að njóta þess að horfa á drenginn stækka og þroskast og taka þátt í þeirri ferð með honum :)  Set hérna mynd af unglingnum á leið í "Lan partý" á næsta bæ sem stóð yfir alla nóttina eins og unglingum er von og vísa og fór Ævar Elí hlaðinn birgðum af snakki og gosi.  Algerlega sætasti strákurinn okkar :)
Kv, Bjarni Kr

Uppeldið að skila sér

Litlu stubbarnir okkar hafa ekki verið hrifin af grænmeti hingað til eins og reyndar mjög mörg börn, en í seinni tíð hefur Ólöf María reynt að koma því meira að og einnig hjá bóndanum á bænum.  Nú er svo komið að bóndinn velur oft að útbúa salat og einnig hefur frúin náð mjög góðum árangri hvað varðar litlu ungana.  Það er oftar en ekki ef salat er á borðstólnum að þau taka verulega vel til matar síns.  Ólöf María á allan heiður af þessum þætti uppeldisins á heimilisfólkinu og er vægast sagt frábært að sjá árangurinn enda mjög mikilvægt hollustu atriði til lengri tíma litið og gott veganesti fyrir börnin út í lífið.  Pabbinn og Lína Rut þurfa samt smá grillaðan kjúkling með svo það dugi sem máltíð og virðast matarvenjur okkar vera mjög líkar á meðan Ólöf María og Ævar Elí geta borðað bara grænmeti enda eru þeirra venjur algerlega eins, svona virðist þetta skiptast eftir genum :)  Set hérna mynd af Línu Rut að raða á diskinn sinn en útlitið á disknum skiptir ekki síður máli :)
Kv, Bjarni Kr

16 January 2012

Nýjasti rakarinn :)

Svo virðist sem sumt sé einfaldlega genatískt, þar sem litla stelpan okkar rauk í það að útbúa rakarastofu fyrir Barbie um daginn.  Hún var ekkert að tvínóna við hlutina heldur skellti bara upp stofu og snyrti allar dúkkurnar sínar og fór það bara vel úr hendi.  Hér var eins og um meðfædda hæfileika væri að ræða enda komin af rakarafjölskyldu í annan legginn.  Hún er svakalega dugleg þessa dagana að leika sér í Barbie og er nánast búin að eigna sér sjónvarpsherbergið enda segist hún hvort eð er nota það mest :)  Yndisleg þessi litla stelpa okkar og svo framtakssöm og dugleg.  Set hérna mynd af henni í óðaönn við að klippa Barbie strákinn sinn :)
Kv, Bjarni Kr

31 December 2011

Gleðilegt nýtt ár 2012

Áramótapistillinn í ár einkennist eða mótast þónokkuð af þeirri staðreynd að bóndinn á bænum er á leið í starfsviðtal til Noregs á nýju ári sem óvíst er hvað ber í för með sér.  Þann 4 janúar eða aðeins eftir 5 daga munu plön ársins liggja fyrir annað hvort plan A eða plan B en þau eru bæði klár.  Það er með ólíkindum að skólinn minn sé að verða búinn og þessu margt merkilega 2ja ára umbreytingar plani okkar senn að ljúka og þegar maður lítur yfir farinn veg er þetta búið að vera stórkostlegt í einu orði sagt.  Þar sem ég er mikið fyrir að setja mér markmið allan ársins hring nýt ég þess enn frekar að setja mér markmið um áramót og fyllist alltaf eldmóð í janúar og febrúar þar sem nýtt ár er að hefjast og nýjir tímar framundan.  Fjölskyldan er í virkilega góðu jafnvægi eftir dvölina í Danmörku, allir orðnir öruggir á sínu umhverfi og verkefnum, allir farnir að tala nýtt tungumál og eiga nýja vini og þrár.  Lína Rut hefur tekið tungumálið einna föstustu tökunum og talar algjörlega eins og innfædd, hún hefur haldið titlinum skemmtilegasta og duglegasta stelpan í bekknum enda hleypur hún hraðast, syngur best, er fimust og flinkust á öllum sviðum og allra manna hugljúfi.  Ævar Elí hefur farið hægar í þetta en meitlað sig inn í hug og hjörtu samnemenda og kennara á seiglunni og rólegu nótunum, hann er virkilega góður í dönskunni en flaggar því ekki eins mikið og systir sín en kemur á óvart þegar hann þarf að nota tungumálið.  Ólöf María hefur notað tungumálið meira í formi sms skilaboða til að staðfesta ýmsa barna hittinga og þessháttar við mömmurnar í bekknum og er hún orðin algerlega fullskrifandi og í raun talandi þó hún flaggi því minnst af okkur öllum enda hógvær að eðlisfari.  Pabbinn hefur þurft að nota dönskuna og er bæði vel talandi og skrifandi en svo hefur það verið enskan í skólanum enda í "international" bekk eða með öðrum orðum þá erum við öll með´etta :)  Framtíðin er örlítið óráðin enn, eins og sagði í byrjun, þar sem skólinn er senn á enda í vor og ekki fullmótað hvort við förum í plan A eða B en við erum þó allavega með 2 plön tilbúin.  Noregsferðin þann fjórða snýst um atvinnumál og það er það sem skiptir okkur mestu máli að fá atvinnu að námi loknu, hinsvegar er undirritaður kominn með inngöngu í MBA nám að loknu núverandi námi og togar það verulega enda fer það meira inn á business og marketing áhugasviðið sem er mér svo kært.  Við fjölskyldan erum þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að prófa að búa á erlendri grund og undirritaður er verulega þakklátur fyrir þær fórnir sem fjölskyldan og frú María hafa fært svo skólagangan gæti orðið að veruleika, þetta er eitthvað sem þarf mikinn kjark til að framkvæma á okkar aldri með 2 börn.  Án konunnar minnar hefði ég ekki getað þetta né án stuðnings frá nánum ættingjum og vinum og fyrir það er ég mjög þakklátur.  Vinátta og góðmennska hefur í raun öðlast nýja merkingu hjá mér þrátt fyrir að ég hafi ávalt verið góður við menn og dýr þá hef ég ekki notið þess á þann hátt sem ég hef gert í fjarbúðinni hérna í DK.  Þrátt fyrir allt hefur þetta þjappað litlu fjölskyldunni minni saman og teljum við okkur vera ósigrandi eftir að hafa farið í gegnum þessa reynslu saman og eiga börnin og frúin mín skilið orðu fyrir dugnað, elju, stuðning og skilning á því að pabbin sé í námi.  Það er því með smá trega í röddu að við hugsum til þess að þurfa kanski að kveðja Danmörk á einhverjum tímapunkti enda gætum við hugsað okkur að setjast hér að til lengri tíma litið.  Danmörk hefur farið vel með okkur, við kunnum að meta sveitalífið, fólkið hérna í kring hefur verið bæði hjálplegt og vingjarnlegt auk þess sem veðurfarið á mjög vel við okkur öll.  Árið 2012 stefnir í að verða breytingar ár fyrir okkur og það stefnir í ný ævintýri og nýjar áskoranir sem við teljum okkur virkilega vel í stakk búin að mætast á nýju ári, við erum þakklat fyrir það sem við höfum og virkilega spennt fyrir því sem framundan er.  Kveðjan frá okkur að þessu sinni hljómar því einhvernveginn svona :)


Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir það liðna, horfum fram á veginn og njótum hverrar stundar að fullnustu enda kemur hún ekki aftur.  Hugsið vel til þeirra sem minna mega sín, hlúið hvort að öðru og látið góðmenskuna verða ykkar leiðarljós í framtíðinni, því sú neikvæðni sem einkenndi landið okkar fallega þegar við fluttum er ekki neinum til góðs.  Leitist við að sjá aðeins það jákvæða í fari fólksins og þið munið uppskera sem þið sáið.  Við sendum öllum ættingjum og vinum sterka strauma héðan frá okkur í Danmörku og hlökkum til að sjá sem flesta á nýju ári.

Að fara í skóla á erlendri grund,
og flytja til Danmerkur með lítinn hund.
Var bæði stór og merkileg stund.
og einungis hægt, léttur í lund.

Við ákváðum strax að standa öll saman,
fjölskyldan ávallt brosand´í framan.
Í hverri og einustu raun sem við sjáum,
samtaka tökum og sigur við fáum.

Kv, Bjarni Kr

28 December 2011

Yndisleg sms skilaboð :)

Lína Rut okkar fékk loksins gsm síma en það hefur verið í umræðuni frá því við fluttum út til DK.  Nú létu foreldrarnir verða að því af hluta til af öryggis ástæðum en ekki síður af þrýstingi :)  Þeir sem sáu jólamyndirnar á facebook hjá mér muna væntanlega eftir svipnum þegar hún opnaði pakkann en það var ótrúlega skemmtilegt "móment" en nú bætast við enn skemmtilegri hlutir því litla stúbban okkar er farin að senda sms til foreldranna og set ég hérna nokkur inn til gamans :)  "Dad er bara1 bateri" - "Ringdu i mig bara firir gani" - "Hæ pabbi dad er gedveIGT" - "Pabbi mer langar ekki i brod mer langar bara i kako" og svona mætti lengi telja :)  Pabbinn vissi að þetta yrði á þennan veginn og samdi því um frítt sms á milli fjölskyldunnar við símafyrirtækið okkar og nú sér maður að það var mjög gáfulegur samningur.  Yndislegt að taka þátt í þessu með litlu stelpunni okkar sem er svo skemmtilega blátt áfram í öllu sem hún gerir.  Set hérna mynd frá aðfangadagskveldi þegar hún var komin í jafnvægi eftir að hafa opnað pakkann með símanum í :)
Kv, Bjarni Kr